Lokapróf námskeiðs er bók

Uppskriftabók - skáldverk er afrakstur námskeiðsins Smiðja: Á þrykk sem er í boði er fyrir nemendur HÍ á meistarastigi í ritlist og hagnýtri ritstjórn og útgáfu. Markmiðið með námskeiðinu er að fela nemendum hið krefjandi verkefni að gefa út bók. Ritlistarnemarnir skrifa skáldverk sem nemar í hagnýtri ritstjórn og útgáfu ritstýra en nemendur námskeiðsins sjá einnig um alla aðra þætti bókaútgáfunnar, ss. fjármögnun, umbrot, kápuhönnun og kynningu. „Það má í raun segja að lokaprófið í námskeiðinu sé bók,“ segir Sigþrúður Gunnarsdóttir, leiðbeinandi námskeiðsins og einn af ritstjórum Forlagsins. 

Frá hugmyndavinnu að útgáfu

Þegar hópurinn hittist fyrst nú í janúarbyrjun hófst hann þegar handa við  hugmyndavinnuna. Sigþrúður gerði nemendum strax grein fyrir að tíminn væri naumur og til þess að ná að gefa út bók á vormánuðum þyrfti skipulagið að vera skothelt. Bekknum var skipað upp í nefndir sem hver um sig sá um einhvern einn lið bókaútgáfunnar. Ritlistarnemar ydduðu blýantana og hófu skrif sín strax í byrjun annar og ritstjórar urðu síðan hluti af því ferli.

Hér er obbinn af nemendum námskeiðsins, f.v.: Halli Civelek, Elísabet Hafsteinsdóttir, Nína Þorkelsdóttir, Þór Fjalar Hallgrímsson, Gréta Sigríður Einarsdóttir, Skúli Jónsson, Ragnheiður Davíðsdóttir, Steinunn Lilja Emilsdóttir, Elín Edda Pálsdóttir…

Hér er obbinn af nemendum námskeiðsins, f.v.: Halli Civelek, Elísabet Hafsteinsdóttir, Nína Þorkelsdóttir, Þór Fjalar Hallgrímsson, Gréta Sigríður Einarsdóttir, Skúli Jónsson, Ragnheiður Davíðsdóttir, Steinunn Lilja Emilsdóttir, Elín Edda Pálsdóttir og Sunna Dís Másdóttir. 

Skáldskapurinn hverfist um uppskriftir

Hópurinn ákvað að leggja upp með ákveðið þema sem er rauði þráðurinn í bókinni allri. Þemað er, eins og titill bókarinnar gefur til kynna, uppskriftir. Í bókinni má finna smásögur, ljóð, myndir og ýmislegt fleira sem allt hverfist á einn eða annan hátt um uppskriftir. Efnistök eru ólík, enda er rithöfundahópurinn afar fjölbreyttur. Skáldverkin fela meðal annars í sér uppskriftir að framandi menningu, furðulegu ferðalagi í geimnum, sköpun heimsins, hafragraut, pönnusteiktum mannshjörtum og afskiptum óvelkominna nágranna.

Myndir af nokkrum meðlimum hópsins, teiknaðar af Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, sem er einn af höfundum bókarinnar. 

Myndir af nokkrum meðlimum hópsins, teiknaðar af Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, sem er einn af höfundum bókarinnar. 

Eins og áður kom fram er öll fjármögnun bókarinnar í höndum nemenda. Hópurinn mun fjármagna verkefnið á Karolina Fund en forsala á bókinni hófst þar í dag. Þeir sem vilja tryggja sér eintak geta smellt HÉR.